Búið er að ganga frá samning við Bandaríkjamanninn Follie Bogan um að leika fyrir lið Selfoss í 1.deildinni í vetur. Follie kemur til liðsins úr NAIA háskólabotanum þar sem hann lék afar vel síðastliðinn vetur með liði Milligan en að loknu tímabilinu fékk hann mikið lof fyrir, m.a. valinn leikmaður síns riðils (ACC conference).
Follie Bogan er fjölhæfur leikmaður og getur spilað nokkrar stöður á vellinum. Hann er væntanlegur til landsins um helgina og verður spennandi að fylgast með honum í Selfossbúningnu í vetur.