Fjörið er að byrja!
Fimmtudaginn 3. október ríða strákarnir á vaðið á heimavelli þegar þeir taka á móti Þórsurum frá Akureyri í Vallaskóla kl. 19:15  og kvöldið eftir, 4. október fer kvennaliðið okkar í Laugardalshöllina og leikur við Ármann kl. 18.
Fyrsti heimaleikur kvennaliðsins verður svo í Vallaskóla laugardaginn 26. október, kl. 18.
Það er mikið gleðiefni að geta teflt fram meistaraflokksliðum karla og kvenna. Liðin eru bæði að mestu skipuð ungum leikmönnum sem hafa farið í gegnum akademíuna okkar og/eða yngri flokka starfið, sumir hverjir í gegnum samstarf við önnur félög.
Við vonumst til þess að sjá sem flest fjölmenna á pallana í vetur!
Áfram Selfoss!