Það er í frásögur færandi að tveir af leikmönnum Selfoss frá síðasta tímabili léku sína fyrstu leiki fyrir Íslands hönd í gær, þegar U20 lið drengja tapaði naumt fyrir Hvít-Rússum á Evrópumóti landsliða 74-79.
Þetta eru Björn Ásgeir Ásgeirsson og Bergvin Einir Stefánsson, sem báðir komu af bekknum í frumraun sinni á stórmóti landsliða.
Björn Ásgeir var einn af lykilmönnum Selfossliðsins, skoraði 7,2 stig á tæpum 20 mínútum í 20 leikjum og var í byrjunarliði í 35% leikja.
Bergvin Einir kom til Selfoss í láni frá Njarðvík á seinni hluta tímabils, spilaði rúmar 11 mínútur í 8 leikjum og skoraði 3,5 stig.
Félagið óskar þessum efnilegu leikmönnum til hamingju með áfangann.
Tölfræðin úr téðum U20 leik má skoða með því að smella hér.