Aðalfundur Selfoss-Körfu verður haldinn þriðjudaginn 21. apríl nk. kl. 20:00 í Selinu v. Engjaveg á Selfossi.
Allir velunnarar félagsins eru velkomnir á fundinn en atkvæðisrétt og kjörgengi hafa einungis skráðir félagar.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf skv. 8. grein laga félagsins:
Dagskrá aðalfundar.
8. gr.
- Formaður setur fund.
- Kosinn fundarstjóri.
- Kosinn fundarritari.
- Fundargerð síðasta aðalfundar lögð fram til samþykktar.
- Formaður leggur fram skýrslu félagsins.
- Gjaldkeri leggur fram og útskýrir skoðaða reikninga, sem síðan eru bornir undir atkvæði.
- Lagabreytingar.
- Kosning stjórnar
- Kosning formanns
- Kosning sex annarra stjórnarmanna.
- Kosning tveggja skoðunarmanna.
- Gjaldkeri leggur fram drög að fjárhagsáætlun fyrir næsta rekstrarár.
- Önnur mál.
Eftirfarandi tillögur að lagabreytingum liggja fyrir fundinum, skv. ábendingum ÍSÍ. Brottfelldur texti er yfirstrikaður en nýr texti skáletraður.
Tillaga að breytingu á 1. grein laganna
1. gr.
Félagið heitir Körfuknattleiksfélag Selfoss,skammstafað stuttnefni Selfoss-Karfa. Heimili og varnarþing er í íþróttahúsi Vallaskóla, á Selfossi.
Tillaga að breytingu á 2. grein laganna
2. gr.
Félagið er myndað af einstaklingum samkvæmt félagaskrá, í þeim tilgangi að stunda, æfa og keppa í körfuknattleik.
Tillaga að breytingu á 5. grein laganna:
5. gr.
Aðalfundur fer með æðsta vald í málefnum félagsins. Aðalfundur er öllum opinn. Aðalfund skal halda ekki síðar en í apríl ár hvert. Boða skal til aðalfundar með minnst 14 daga fyrirvara, með auglýsingu á opinberum vettvangi. Í auglýsingu skal dagskrá fundarins koma fram. Skila þarf tillögum að málefnum og lagabreytingum á aðalfundi til stjórnar minnst 15 dögum fyrir fund. Stjórn er skylt að auglýsa eftir tillögum félagsmanna á heimasíðu félagsins. Fundurinn er lögmætur ef löglega hefur verið til hans boðað. Atkvæðisrétt og kjörgengi hafa eingöngu skráðir félagar sem eru orðnir lögráða. 16 ára á árinu og eldri.
Stjórnin