Aðalfundur Selfoss-Körfu verður haldinn þriðjudaginn 21. apríl nk. kl. 20:00 í Selinu v. Engjaveg á Selfossi.

Allir velunnarar félagsins eru velkomnir á fundinn en atkvæðisrétt og kjörgengi hafa einungis skráðir félagar.

Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf skv. 8. grein laga félagsins:

Dagskrá aðalfundar.

8. gr.

  1. Formaður setur fund.
  2. Kosinn fundarstjóri.
  3. Kosinn fundarritari.
  4. Fundargerð síðasta aðalfundar lögð fram til samþykktar.
  5. Formaður leggur fram skýrslu félagsins.
  6. Gjaldkeri leggur fram og útskýrir skoðaða reikninga, sem síðan eru bornir undir atkvæði.
  7. Lagabreytingar.
  8. Kosning stjórnar
  9. Kosning formanns
  10. Kosning sex annarra stjórnarmanna.
  11. Kosning tveggja skoðunarmanna.
  12. Gjaldkeri leggur fram drög að fjárhagsáætlun fyrir næsta rekstrarár.
  13. Önnur mál.

Eftirfarandi tillögur að lagabreytingum liggja fyrir fundinum, skv. ábendingum ÍSÍ. Brottfelldur texti er yfirstrikaður en nýr texti skáletraður.

Tillaga að breytingu á 1. grein laganna

1. gr.

Félagið heitir Körfuknattleiksfélag Selfoss,skammstafað stuttnefni Selfoss-KarfaHeimili og varnarþing er í íþróttahúsi Vallaskóla, á Selfossi.

Tillaga að breytingu á 2. grein laganna

2. gr.

Félagið er myndað af einstaklingum samkvæmt félagaskrá, í þeim tilgangi að stunda, æfa og keppa í körfuknattleik.

 

Tillaga að breytingu á 5. grein laganna:

5. gr.

Aðalfundur fer með æðsta vald í málefnum félagsins. Aðalfundur er öllum opinn. Aðalfund skal halda ekki síðar en í apríl ár hvert. Boða skal til aðalfundar með minnst 14 daga fyrirvara, með auglýsingu á opinberum vettvangi. Í auglýsingu skal dagskrá fundarins koma fram. Skila þarf tillögum að málefnum og lagabreytingum á aðalfundi til stjórnar minnst 15 dögum fyrir fund. Stjórn er skylt að auglýsa eftir tillögum félagsmanna á heimasíðu félagsins. Fundurinn er lögmætur ef löglega hefur verið til hans boðað. Atkvæðisrétt og kjörgengi hafa eingöngu skráðir félagar sem eru orðnir lögráða. 16 ára á árinu og eldri.

 

Stjórnin