Aðalfundur Körfuknattleiksfélags Selfoss verður haldinn mánudaginn 30. mars 2020 kl. 20:00 í Selinu, Engjavegi 48, á Selfossi. Allir velunnarar félagsins velkomnir. Dagskrá aðalfundar skv. lögum félagsins er eftirfarandi:
- gr.
Dagskrá aðalfundar.
- Formaður setur fund.
- Kosinn fundarstjóri.
- Kosinn fundarritari.
- Fundargerð síðasta aðalfundar lögð fram til samþykktar.
- Formaður leggur fram skýrslu félagsins.
- Gjaldkeri leggur fram og útskýrir skoðaðareikninga, sem síðan eru bornir undir atkvæði.
- Lagabreytingar.
- Kosning stjórnar
- Kosning formanns
- Kosning sex annarra stjórnarmanna.
- Kosning tveggja skoðunarmanna.
- Gjaldkeri leggur fram drög að fjárhagsáætlun fyrir næsta rekstrarár.
- Önnur mál.
Stjórnin