Í ljósi nýjustu tilslakana geta æfingar og keppni hafist að nýju á morgun, fimmtudag. Stefnt er að því að 1. deild karla leiki næstkomandi föstudag, 23. apríl og að deildarkeppninni ljúki 10 maí. Skv. nýjustu tíðindum er heimild fyrir allt að 100 áhorfendum á íþróttakappleiki. Það þýðir að engar breytingar verða varðandi áhorfendur í Gjánni, frá síðasta „keppnisskeiði“ sem lauk 25. mars. Sæti eru númeruð með 1 m. millibili í stúkunni og áhorfendum er skylt að sitja í úthlutuðu sæti allan tímann sem þeir eru á staðnum, forðast hópamyndanir og gæta sóttvarna.

KKÍ er með í skoðun hvort úrslitakeppni í deildinni verði með sama sniði og ákveðið hafði verið, þ.e. að efsta liðið að lokinni deildarkeppni frai beint upp en hin 8 leiki öll í úrslitakeppni um hitt lausa sætið í úrvalsdeild, eða hvort breytingar verði gerðar, í ljósi tafa á deildarkeppninni.

Deildarkeppni yngri flokka (9., 10., drengja-, stúlkna- og unglingaflokkur) er lokið, en gert er ráð fyrir að úrslitakeppni þessara flokka fari fram eins og áður hafði verið kynnt.
Þau fjölliðamót yngri flokka (7. og 8. flokkur) sem leika átti í lok mars og byrjun apríl verða ekki leikin eða kláruð og því verður staða í riðlum sú sama og eftir 2. umferð. Lokamót verða leikin með einhverjum hætti í maí, eins og takmarkanir leyfa.
Þau fjölvallamót yngri flokka (MB10 og MB11 ára) sem leika átti í apríl verða ekki leikin. Staða í riðlum verður sú sama og eftir 1. umferð MB10 ára og 2. umferð MB11 ára.
Nánari útfærslur verða kynntar hér þegar þær liggja fyrir.