Körfubolti

  • Grunntækni
    • Greining á skotformi
    • Knatttækni
    • Fótavinna í vörn og sókn
    • Sendingar
  • Leikskilningur
    • Myndgreining af leikjum og æfingum til að finna styrkleika og veikleika, hvar er alemnnt þörf að bæta sig.
    • Æfingar til að auka skilning, vera fær um að þjálfa sjálfan sig og byggja upp sjálfstraust á öllum sviðum.
    • Æfingar í beinni sem leikmenn þurfa að lesa og bregðast við á leikhraða.
  • Hæfileikar og tilfinning fyrir leiknum
    • Byggja upp sjálfstraust til að takast á við mistök
  • Endurtekning, endurtekning, endurtekning

Styrktarþjálfun

Einstaklingsæfingaáætlanir til að styrkja hvern og einn af eftirfarandi lykilþáttum

  • Styrkur
  • Kraftur
  • Jafnvægi
  • Hraði
  • Fimi
  • Miðvöðvar
  • Hreyfanleiki
  • Viðbragðstími

Næring

Einn af vanmetnustu þáttunum til að komast á toppinn, sérstaklega í íþróttum ungmenna. Við bjóðum ungum íþróttamönnum leiðsögn og hjálp við að skapa sér góðar matarvenjur.

  • Drykkjarvenjur
  • Matseðill fyrir sumar / undirbúningstímabil / keppnistíabil
  • Ráðleggingar um fæðubótarefni
  • Líkamsþyngd
  • Ráðgjöf um næringu fyrir leik/æfingu og eftir leik/æfingu

Sjúkraþjálfun

Sjúkraþjálfunarstöðin í bænum, „Máttur“, hefur á að skipa nokkrum af bestu sjúkraþjálfurum landsins. Þeir hjálpa okkur á fjölbreyttan hátt:

  • Fræðsla um meiðslameðferð
  • Sjúkraþjálfun
  • Mat á meiðslum
  • Íþróttanudd
  • Umbótaáætlanir

Tengsl við körfuboltaheiminn

Starfsfólk okkar býr yfir fjölþættri reynslu eftir þátttöku í alþjóðlegum körfubolta á mörgum sviðum, og getur því hjálpað iðkendum að átta sig á körfuboltaheiminum, hvað þarf til að geta spilað í NCAA eða atvinnumennsku, og við að undirbúa þann feril sem þeir stefna á. Við getum komið okkar fólki í samband við réttu aðilana til að þróa ferilinn áfram, og leiðbeint þeim um árangursrík samskipti við heim atvinnumennskunnar.

  • Starfslið okkar hefur starfsreynslu við:
  • körfuboltaakademíur
  • bandaríska háskólaboltann
  • A-landslið
  • atvinnumannalið í Evrópu
  • körfuboltabúðir víða um heim

Liðsheild, andlegur styrkur og leiðtogahæfni

Lærdóminn af körfuboltavellinum er hægt að nýta í glímunni við lífið sjálft. Við hjálpum íþróttafólkinu okkar að tileinka sér venjur sem leiða til betri árangurs innan og utan vallar.

  • Samskipti
  • Markmiðasetning
  • Ákvarðanataka
  • Tímastjórnun
  • Ábyrgð gagnvart sjálfum sér og að krefjast ábyrgðar af öðrum
  • S-in þrjú: sjálfsagi, sjálfsöryggi og stöðugleiki
  • Þjálfun í notkun samfélagsmiðla
Jáverk
Set
Hótel Selfoss
Höldur
Ræktó
Ræktó
Ræktó