Árni Þór Hilmarsson, þjálfari meistaraflokks karla, hefur sagt upp störfum hjá Selfoss Körfu vegna heilsubrests. Fram að áramótum mun hann áfram vinna við körfuboltaakademíuna og einnig starfa sem yfirþjálfari og umsjónarmaður yngri flokka. Árni hefur starfað hjá félaginu síðan sumarið 2023 og hefur komið með margar hugmyndir inn í félagið sem hefur hjálpað okkar körfuboltasamfélagi að vaxa og dafna. Við hjá Selfoss Körfu þökkum Árna kærlega fyrir hans framlag og óskum honum velfarnaðar og góðs bata.