Árskort Selfoss Körfu eru komin í sölu og hægt er að kaupa þau við innganginn á heimaleikjum félagsins og í Stubbur appinu.

Árskortin kosta litlar 15.000 krónur og gilda inn á alla heimileiki hjá meistaraflokkum kvenna og karla (fyrir utan bikarleiki).

Þar að auki ákvað stjórn að líkt og í fyrra fá iðkendur sem hafa greitt æfingagjöld vetrarins árskort (1 á heimili) sem gildir fyrir 1 fullorðinn á alla heimaleiki félagsins (fyrir utan bikarleiki).

Það er frábær fjölskylduskemmtun að fara á körfuboltaleik, vonandi vilja sem flestir nýta þetta og mæta á leiki hjá okkar ungu og efnilegu liðum í vetur.

Við vonumst til þess að sjá sem flesta fjölmenna á pallana í vetur!

Áfram Selfoss!