Selfossliðið stendur í ströngu næstu tvær vikurnar og leikur 5 leiki á 15 dögum.
Ballið byrjar í kvöld á útileik í 1. deild karla gegn Hrunamönnum á Flúðum. Þá tekur við bikarleikur í unglingaflokki nk.þriðjudag í Keflavík. U.fl. fær svo Stjörnuna/Álftanes í heimsókn sunnudaginn 11.10. á Íslandsmótinu. Mánudagurinn gefst til að safna orku fyrir bikarleik í m.fl. á heimavelli gegn Álftnesingum þriðjudaginn 13. kl. 20 og þá er orðið stutt í bílferð á Ísafjörð föstudaginn 16.10. til að eiga við Vestra í 1. deild.
Hafa ber í huga að u.fl. er kjarninn í m.fl. liði félgsins.
Fös. 2.10. kl. 19:15 Hrun.-Selfoss, 1. deild karla á Flúðum
Þri. 6.10. kl. 20:00 Keflavík U20-Selfoss U20, bikarkeppni u.fl. í Keflavík
Sun. 11.10. kl. 17:00 Selfoss U20-Stjarnan/Álftanes U20, Ísl. mót í Gjánni
Þri. 13.10. kl. 20:00 Selfoss-Álftanes, bikarkeppni karla í Gjánni
Fös. 16.10. kl. 19:19 Vestri-Selfoss, 1. deild karla, á Ísafirði