Jafnréttisstefna
Jafnréttisáætlun Selfoss-Körfu byggir á lögum nr. 10/2008 um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna. Jafnréttisáætlunin er jafnframt byggð á vinnu Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands og Jafnréttisstofu um gerð jafnréttisáætlana fyrir íþróttafélög og leiðbeiningar þess efnis.
IÐKENDUR
Markmið | Aðgerð | Ábyrgð | Tímarammi |
Öll kyn, í sömu íþróttagrein og á sama aldri, fái jafn marga og sambærilega æfingatíma. Kynin hafi sambærilega aðstöðu/aðbúnað.
|
Úttekt á æfingatíma kynja í sömu íþróttagrein og á sama aldri. Úttekt á aðbúnaði og aðstöðu kynja í sömu grein og á sama aldri. Leiðrétta kynbundinn mun ef er.
|
Stjórn eða framkvæmdastjóri. | Árlega |
Samræmi í fjárveitingum til íþróttagreina eftir kynjum. Kynjunum er ekki mismunað í fréttum eða í öðru efni sem félagið sendir frá sér.
|
Úttekt á því hvernig fjármagni er skipt milli íþróttagreina eftir kynjum. Úttekt á fréttum og öðru efni sem félagið sendir frá sér m.t.t. kyns. Leiðrétta kynbundinn mun ef er.
|
Stjórn eða framkvæmdastjóri. | Árlega |
Verlaun allra kynja innan allra flokka og greina eru sambærileg. Samstarfsaðilar þekki stefnu félagsins í jafnréttismálum.
|
Úttekt á verðlaunum eftir kyni. Leiðrétta kynbundinn mun ef er. Jafnréttisstefna félagsins kynnt fyrir samstarfsaðilum.
|
Stjórn eða framkvæmdastjóri. | Árlega |
Vinna gegn staðalmyndum kynjanna.
|
Úttekt á fjölda iðkenda innan hverrar íþróttagreinar eftir kyni. Gæta þess að öll kyn eigi jafna möguleika til iðkunar íþróttagreinar/- greina.
|
Stjórn eða framkvæmdastjóri. | Árlega |
Koma í veg fyrir kynbundið ofbeldi, kynbundna áreitni og kynferðislega áreitni innan félagsins.
|
Fræðsla fyrir þjálfara. Vinna forvarnar- og viðbragðsáætlun. Forvarnar og viðbragðsáætlunin kynnt fyrir starfsfólki.
|
Stjórn félagsins. | Árlega |
ÞJÁLFARAR
Markmið | Aðgerð | Ábyrgð | Tímarammi |
Þjálfarar eru vel menntaðir og vel að sér um jafnrétti kynjanna. Þjálfarar njóta sömu launa og kjara fyrir sömu eða sambærileg störf og hafa sömu tækifæri til að afla sér þekkingar.
|
Fræðsla um jafnrétti kynjanna fyrir þjálfara, stjórn og starfsfólk félagsins. Úttekt á menntun, launum og launakjörum þjálfara m.t.t. kyns. Leiðrétta kynbundinn mun ef er.
|
Stjórn eða framkvæmdastjóri. | Árlega |
NEFNDIR OG RÁÐ
Markmið | Aðgerð | Ábyrgð | Tímarammi |
Hlutfall kynjanna í nefndum, ráðum og stjórnum félagsins er sem jafnast og endurspeglar hlutfall iðkenda í viðkomandi íþróttagrein. Jafnrétti sé haft i huga varðandi það hverjir koma fram fyrir hönd félagsins.
|
Úttekt á nefndum, ráðum og stjórnum félagsins m.t.t. kyns. Leiðrétta kynbundinn mun ef er.
|
Stjórn félagsins. | Árlega |
EFTIRFYLGNI/ENDURSKOÐUN
Jafnréttisáætlunin á að vera virk í öllu starfi félagsins, hún á að vera lifandi plagg sem tekur breytingum þegar þurfa þykir. Árlega fer stjórn félagsins yfir jafnréttisáætlunina og metur árangur verkefna. Hvað gerum við vel? Hvað getum við gert betur?
Markmið | Aðgerð | Ábyrgð | Tímarammi |
Jafnréttisáætlunin sé virk í öllu starfi félagsins. Jafnréttisáætlunin er í sífelldri þróun. Jafnréttisáætlunin er endurskoðuð á fjögurra ára fresti
|
Áætlunin og árangur verkefna kynnt innan félagsins og birt á heimasíðu. Fara yfir jafnréttisáætlunina og uppfæra m.t.t. árangurs og reynslu. Tillaga að nýrri jafnréttisáætlun lögð fram byggð á fyrri reynslu. Ný jafnréttisáætlun til næstu fjögurra ára samþykkt og tekur gildi.
|
Stjórn | Árlega
Fjórða hvert ár |
Samþykkt í stjórn 25.02.2019
Gylfi Þorkelsson – Eyþór Frímannsson – Auður Rafnsdóttir – Jóhanna Hallbjörnsdóttir
Ólafur Valdín Halldórsson – Blaka Hreggviðsdóttir – Sigríður Elín Sveinsdóttir